Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
Af 19. júní og sérstakri merkingu hans hjá mér.
19.6.2007 | 21:25
Þá er bleikur dagur á enda runninn! Óska öllum kynsystrum mínum hjartanlega til hamingju. Á okkar heimili er þessi dagur með enn hátíðlegri blæ þar sem litli unginn okkar afrekaði það að koma í heiminn rétt fyrir miðnætti á kvenréttindadeginum fyrir 6 árum síðan.
Var með leikskólaafmæli, 15 yndislegir krakkar á aldrinum 4-6 ára auk þriggja eldri systkina þeirra skoppuðu hér innan sem utan húss og ég naut þess í botn að hlaða þau af sykri áður en ég afhenti þau foreldrunum.
Best að fara að gíra litla hamingjusama sykurgrísinn minn í rúmið....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Af gömlum og góðum bíómyndum.
17.6.2007 | 23:34
Ég keypti mér dvdmynd á Amazon.com. Að vísu gat ég ekki spilað hana í dvd spilaranum mínum út af region vandamáli en ég horfði bara á hana í tölvunni. Þetta er gamla góða ævintýramyndin Labyrinth (Jim Henson). Hún var til á æskuheimili mínu eftir að hafa verið tekin upp úr Rúv og var í miklu uppáhaldi hjá mér og a.m.k. litla bróður mínum. Síðan tók ég óvart yfir hana :(
Það var magnað að horfa á hana aftur. Meistari Bowie var í hreinskilni sagt reyndar oggulítið hallærislegri núna, með sín fjaðurmögnuðu dansspor í níðþröngum buxum og eighties hárgreiðsluna. En hann er samt alltaf góður. Jennifer Connelly var jafn saklaus og góð og mig minnti og Toby litli alveg sama dúllan. Og stjörnurnar, allar hinar frábæru leikbrúður Hensons, standast alveg tímans tönn þrátt fyrir að vera ekki búnar til í tölvu.
Og boðskapurinn er enn í fullu gildi,
að gefast aldrei upp
að stelpur eru alveg jafn klárar og snjallar og strákar (og tröll)
og að maður óskar þess aldrei aldrei aldrei að tröll taki börnin sín. Alveg sama hvað þau grenja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jahú og jibbý jei!
12.6.2007 | 14:05
Ferðum Herjólfs fjölgað í sumar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Af zero viðskiptaviti
9.6.2007 | 11:50
Auglýsingaherferð fyrir Coke Zero í bága við siðareglur SÍA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Af samtakamætti Eyjamanna og samgöngum
6.6.2007 | 08:53
Frá því ég flutti til Eyja fyrir rúmum 15 árum hef ég dáðst að mörgu og þar með töldu samtakamætti Eyjamanna. Hér er gott að syrgja, hér er gott að eiga erfitt því samkenndin er mikil. Hér er líka gott að eiga góðar og glaðlegar stundir.
Því miður felst samtakamátturinn stundum líka í því að vera samtaka í að tæta niður ágætis hugmyndir. Hér hafa verið gefin út veiðileyfi á ótrúlegustu hluti, allt frá aldursskiptingu grunnskóla (sem þó var kýld í gegn) til þeirrar hugmyndar að gera höfn í Bakkafjöru. Bakkafjöruhöfn varð að pólitísku óhreinu Evubarni fyrir kosningarnar. "Enginn" virtist vilja Bakkafjöruhöfn og "allir" fundu því allt til foráttu. Gæsalappirnar merkja að ég tel að hávær minnihlutahópur hafi ráðið ferðinni í umræðunni.
Nú tel ég mig vera sérfræðing á mínu sviði. Ég tel mig ekki vera sérfræðing á öllum sviðum. Þar deili ég ekki skoðun með stórum hluta Eyjamanna sem telja sig vera sérfræðinga á öllum sviðum. Ég tel mig hafa skrambi góða þekkingu á félagsþjónustu og aðstæðum fólks í hinum ýmsu erfiðleikum. Ég tel mig ekki hafa nokkurt einasta vit á því hvort og þá hvernig hægt sé að búa til brúklega höfn við Landeyjasand. Ég treysti þeim sérfræðingum sem um málið fjalla að finna það út.
Ég er þó viss um eitt og tel mig vera sérfræðing í því: Sjóferðir eins og ég lenti í sl. sunnudagskvöld (og í mörg skipti áður) með Herjólfi eru ekki boðlegar fólki sem vill öruggar og þægilegar samgöngur, fólki sem á heimtingu á öruggum og þægilegum samgöngum. Þetta er ekki boðlegt. Það hefði skipt mig öllu máli að kveljast aðeins í hálftíma - sem yrði reyndin með Bakkafjöruhöfn, en hefði ekki skipt meginmáli þó kvölin hefði aðeins verið klukkutíma styttri en hún var - sem yrði reyndin með nýjum "hraðskreiðum" Herjólfi til Þorlákshafnar. Og það breytir mig engu þótt hægt verði að gera göng einhvern tímann um miðja þessa öld.
Með hverri sjóveikihrinunni hallast ég æ meira að Bakkafjörunni. En það skiptir svo sem engu. Ég hef nefnilega ekkert vit á þessu og því síður ræð ég þessu.
Búsetu minni til skemmri og lengri tíma ræð ég hins vegar......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Af greiningum og biðlistum
5.6.2007 | 17:12
Ég var í sl. viku á fjölþjóðlegri ráðstefnu um rannsóknir á einhverfu. Það mætti hæglega draga saman niðurstöðurnar í tvo meginþætti:
a) Foreldrar sem hafa á tilfinningunni að eitthvað sé að hafa oftast rétt fyrir sér og fagfólk er að byrja að gera sér grein fyrir að það á skilyrðislaust að hlusta á foreldrana
b) Snemmtæk íhlutun skiptir meginmáli varðandi framvindu og þroskamöguleika einhverfra barna
Með þetta tvennt í huga er það grátlegt til þess að vita að biðin eftir greiningu hefur verið allt að 3-4 ár á Greiningarstöðina, nóta bene, það er eftir að foreldrar hafa gert viðvart um áhyggjur sínar og sérfræðingar búnir að taka við sér og senda inn umsóknina.
Öll stytting á þessari bið er forgangsmál í samfélaginu og ég fagna því að þetta skuli vera ein af fyrstu ályktunum nýrrar ríkisstjórnar.
Við vorum reyndar heppin, þurftum bara að bíða í 10 mánuði....
Fækkun á biðlistum forgangsatriði í aðgerðaáætlun í þágu barna og unglinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Af vorfríi og jarðarför forsetakonu
5.6.2007 | 14:17
Ég er í vorfríi, varð að fá svigrúm til að anda. Ná áttum og hvíla mig. Í dag lagði ég mig um miðjan dag með unglingnum mínum. Við vorum bæði hálf svefnlaus eftir ferðahelgi og ég er ennþá mjög þreytt.
Ég hef ekki lagt mig um miðjan dag síðan allir fengu frí til að fylgjast með jarðarför Guðrúnar heitinnar Katrínar forsetafrúar, skömm að segja frá því, en ég sofnaði yfir jarðarförinni í sjónvarpinu.
Fyrirgefðu hr. Ólafur
Og fyrirgefðu Guðrún Katrín
En blundurinn var góður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aldrei að segja aldrei
5.6.2007 | 09:06
Einu sinni ætlaði ég aldrei að fá mér gemsa. Einu sinni ætlaði ég aldrei að fá mér uppþvottavél. Einu sinni ætlaði ég aldrei að fá mér þurrkara. Einu sinni ætlaði ég aldrei að reykja. Og einu sinni ætlaði ég meira að segja aldrei að hætta að reykja.
Og ég ætlaði aldrei að blogga......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)