Hér sé stuð. Sigrún stuð.
6.12.2008 | 19:37
Ég ætla rétt að "vona" að allir séu búnir að skoða umtöluðustu bloggsíðu vefheima í Eyjum þessa dagana og snilldarfærslu hennar um Herjólf og hvali:
http://sigrunstud.blog.is/blog/sigrunstud/
Ég leyfi mér að endurtaka það sem ég sagði á fésbókinni;
Annars vorum við hjónakornin að koma úr fimmtugsafmæli sr. Kristjáns, yndisleg stund með skemmtilegu fólki. Takk fyrir okkur kæru hjón. Og krakkarnir þeirra auðvitað líka, takk takk :)
Í morgun fór ég í Landakirkju og kvaddi Jónu Ólafs, yndislega konu og samstarfsfélaga. Það var erfitt.
Man.Utd. hafði þetta á lokamínútunni gegn liðinu mínu. Húsbandinu og Daníel til mikillar ánægju og ég verð að segja að mér létti talsvert, heimilisfriðnum borgið. En okkar tími mun koma Sunderland :)
Athugasemdir
ef hún er steríótýpa 101 reykjavíks þá er steríótýpa vestmannaeyja fullur sjóari sem er alltaf í slag á lundanum
... (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 15:06
Alveg örugglega.
Stereótýpur eru ekki sannar b.t.w. Bændur eru ekki eins og Magnús og þeir sem búa í miðbæ Reykjavíkur eru ekki eins og Sigrún.
Guðrún Jónsdóttir, 7.12.2008 kl. 17:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.