Mamma skvísa
15.6.2008 | 10:55
Ég var að grafa upp gamlar myndir til að skanna inn og senda inn á Reykjaskólasíðuna (en ef það var ekki komið nógu skýrt fram þá verður Reykjaskóla-reunion í sumar fyrir þá sem voru þar 1980-1982).
Þá fann ég þessa mynd
Þetta er ég (til vinstri á myndinni í bleikum kjól) 15 ára gömul í búningaflippi heima hjá Siggu Gróu vinkonu. Á þessum tíma var ég hryllilega meðvituð eins og 15 ára krakkar auðvitað eru, uppfull af komplexum og fannst ég vera hryllilega feit. Þegar ég fann myndina starði ég á hana, vá, hvað ég myndi gefa fyrir að vera með þennan vöxt í dag
Ég sýndi unglingnum mínum (sem er einmitt rétt að verða 15 ára) myndina í von um upphrópanir og aðdáunarmerki. Hann horfði á myndina, síðan á mig, aftur á myndina og svo aftur á mig. Í svip hans var hrúga af hneykslun með dash af vorkunnsemi. Svo spurði hann: Hvað vantaði í toppstykkið á þér þarna?
Kannski er mamma bara best eins og hún er. Mjúk með toppstykkið heilt.
Við hliðina á mér stendur hún Magga sem var vinkona og vinnufélagi okkar þetta sumar (1982). Hvar ert þú í dag Magga mín?
Athugasemdir
Takk Gunna mín þú varst flott og ert ... ég hlakka ekkert smá til að hitta ykkur öll í sumar.
Ég spurði einmitt mína 15 ára hvar ég væri og það tóka hana bara eitt lúkk.. hérna .... sem sé ég hef ekkert breyst (OK í mér) ég hef víst aldrei náð því að vera neitt sérstaklega alvarleg.. trúlega ekki með toppstykkið í lagi eins og þinn sagði .
það verður gaman að sjá hinar myndirnar mín kæra.
Nemendur Reykjaskóla 1980-1982, 15.6.2008 kl. 20:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.