Reykjaskólaendurfundir í sumar
11.6.2008 | 09:29
Ég man.... .... snjókast og snjóslagir.... sundlaugarpartý í blíðviðri, hlaupið yfir í matsal á sundfötunum til að fá sér að drekka og svo aftur í sund..... tússlitir settir í hár til að búa til strípur..... bíósýningar, t.d. Ormaflóðið, kokkurinn hótaði að hafa hakk og spaghettí í matinn..... tónleika Utangarðsmanna og Bubba (ég á ennþá eiginhandaráritanirnar)..... frægðarför í Laugardalshöllina þar sem við í ósamstæðum og litríkum fimleikabúningum slógum í gegn undir handleiðslu Jónínu með tónlistina úr Fame dynjandi..... helgarferðir til Reykjavíkur, Hlemmur, 1001 nótt, Vinnufatabúðin og Hallærisplanið..... ég man líka snúðana hans Lóa, bestir í heimi..... eldhúsvaktir þar sem okkur var kennt að vaska upp og skúra.... kornfleks og hveitibrauð í morgunmat, til hátíðabrigða á sunnudögum cheerios og jafnvel cocoa puffs, sumir lögðu það á sig að vakna í morgunmat á sunnudögum!..... svínadallurinn sem hirti matarleifarnar eftir okkur... og stöku hnífapör þvældust með..... fyrstu ástina..... fyrstu ástarsorgina..... skólakeppni milli bekkja í handbolta, innanhúsfótbolta, körfubolta og allir tóku þátt.... leiksviðið í salnum, árshátíðir og 1. des. skemmtanir.... andaglas og draugasögur.... svítuna .... jafnvel Smókinn, þó ég byrjaði ekki fyrir alvöru að reykja fyrr en eftir RSK.... lestíma og vistartíma.... klíkur og stéttaskiptingu .....En man einhver eftir mér??
Athugasemdir
Jebb, mér finnst ég kannast eitthvað við þig.
Og líka upptalninguna, sem ég gæti nú hæglega bætt við, en það er víst ekki við hæfi í svona opnum fjölmiðli.
Þröstur Unnar, 12.6.2008 kl. 16:13
Hæ skvís, já þetta er mjög kunnuglegt allt saman ....
Ertu ekki til í að hjálpa mér að leita uppi gamalt Reykjaskólalið og fá það til að skrifa minningarbrot sem þetta .... senda mér myndir og gerast bloggvinir Reykjaskóla.
Herdís Sigurjónsdóttir, 14.6.2008 kl. 08:59
Blessuð og sæl gamli kompufélagi ( í öðrum skóla reyndar) !!
Auðvitað man ég eftir þér og flestu því sem þú taldir upp, ég man líka eftir ælugrautnum hehe
Imba (IP-tala skráð) 14.6.2008 kl. 18:42
Já, Herdís, ef ég rekst á eitthvað Reykjaskólapakk skal ég framselja það!
Ég er að reyna að skanna inn nokkrar gamlar myndir og ætla að senda þær á Reykjaskólanetfangið.
Blessuð Imba, vonast til að hitta þig í sumar og rifja upp gamla takta. Já ælugrauturinn, gekk hann ekki öðru nafni undir kringlumjólk? Harðar kringlur soðnar í sykraðri mjólk. Útlitið var ekki fagurt. Haldið þið að unglingar í dag myndu éta þetta?
Guðrún Jónsdóttir, 14.6.2008 kl. 20:32
Já og blessaður kæri stóri bróðir Spánarflakkari. Við vorum nú ekki beinlínis samtímis á Rsk en það breyttist örugglega ekki margt á milli ára á þessum tíma.
Guðrún Jónsdóttir, 14.6.2008 kl. 20:34
Váá.... Gunna! Ég man.... þegar þú telur þetta upp, en er annars með algjört gullfiskaminni. Hlakka sko til að rifja þetta allt upp. En jú ég man eftir ælugrautnum líka eins og ég hafi etið hann í gær þó ég hafi ekki smakkað hann síðan þarna um árið. Þetta verður skemmtilegt.
Kveðja úr Grindó
Adda (IP-tala skráð) 15.6.2008 kl. 19:28
Halló Gunna Jóns, gott að þú skulir vera fundin, í Vestmannaeyjum. Hlakka bara til að ryfja upp upp gömul og ógömul kynni . p.s en manst þú eftir mér. kveðja Habba
Habba (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 23:04
Auðvitað man ég eftir Höbbu vesturvistarflippara
Guðrún Jónsdóttir, 23.6.2008 kl. 08:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.