Af 19. júní og sérstakri merkingu hans hjá mér.
19.6.2007 | 21:25
Þá er bleikur dagur á enda runninn! Óska öllum kynsystrum mínum hjartanlega til hamingju. Á okkar heimili er þessi dagur með enn hátíðlegri blæ þar sem litli unginn okkar afrekaði það að koma í heiminn rétt fyrir miðnætti á kvenréttindadeginum fyrir 6 árum síðan.
Var með leikskólaafmæli, 15 yndislegir krakkar á aldrinum 4-6 ára auk þriggja eldri systkina þeirra skoppuðu hér innan sem utan húss og ég naut þess í botn að hlaða þau af sykri áður en ég afhenti þau foreldrunum.
Best að fara að gíra litla hamingjusama sykurgrísinn minn í rúmið....
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.