Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
Já, á ég að blogga hér?
25.1.2009 | 16:08
Það verður að segjast eins og er að feisbókin hefur verulega seðjað tjáningargleði mína að undanförnu en kannski er kominn tími á smá færslu hér.
Mér líður allvel. Kannski vegna þess að ég hef það sem af er árs haldið mig alfarið á eyjunni góðu. Ég er enn furðu lostin á öllum þessum Íslendingum sem hingað til hafa tekið hverju sem er sem að þeim er rétt en eru nú að sýna hegðun sem maður hefur hingað til aðeins séð á Reuters fréttamyndum.
Ekki meir um það. Þetta hlýtur allt að lagast. Og koma í ljós. Og reddast.
Orsök vellíðan minnar er örugglega nýtilkomið jóga. Ég var svo dugleg að mæta í Body Balance hjá henni Hafdísi fyrir áramót að hún gaf mér eitt stk. jóganámskeið. Þetta er algerlega málið. Ég elska þetta.
Mæli með þessu fyrir alla.
Nameste!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)