Myndir frá systkinamótinu eru komnar inn :)
26.7.2008 | 18:10
Við fórum fyrir hálfum mánuði á heimaslóðir til að hittast, systkinin. Erum að reyna að koma okkur upp hittingavenju, hittast lágmark 1x, helst 2x á ári og þá a.m.k. í annað hvert skipti með börnunum.
Að þessu sinni voru Bibbi og Sigrún í Eyjanesi, ásamt bústaðsbúunum Bjarna og Hafdísi gestgjafar. Þrátt fyrir talsverða úrkomu var ekki mikill vindur og tjöldin láku ekki neitt. Fengum svo sól og blástur á sunnudagsmorguninn svo allt var tekið þurrt niður.
Þetta var eins og alltaf, óviðjafnanlega gaman og ekki síst fyrir krakkana. Svo er alltaf svo heilandi að flækjast á heimaslóðir, ráfa um þúfurnar þar sem maður lék sér sem krakki, skoða gömlu traktorana og Landroverinn gamla sem var einmitt bíllinn sem ég lærði fyrst að keyra.
Setti inn í albúmið nokkrar vel valdar myndir ef ættingjarnir skyldu slysast inn á síðuna :)
(Skamm Þröstur. En þú kemur bara næst).
Athugasemdir
Jebb ég veit.
Hræðilegt að horfa á svona matarborð án þess að eiga rönd við reist.
Þröstur Unnar, 27.7.2008 kl. 09:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.