Já, á ég að blogga hér?

Það verður að segjast eins og er að feisbókin hefur verulega seðjað tjáningargleði mína að undanförnu en kannski er kominn tími á smá færslu hér.

Mér líður allvel.  Kannski vegna þess að ég hef það sem af er árs haldið mig alfarið á eyjunni góðu. Ég er enn furðu lostin á öllum þessum Íslendingum sem hingað til hafa tekið hverju sem er sem að þeim er rétt en eru nú að sýna hegðun sem maður hefur hingað til aðeins séð á Reuters fréttamyndum.

Ekki meir um það. Þetta hlýtur allt að lagast. Og koma í ljós. Og reddast.

Orsök vellíðan minnar er örugglega nýtilkomið jóga.  Ég var svo dugleg að mæta í Body Balance hjá henni Hafdísi fyrir áramót að hún gaf mér eitt stk. jóganámskeið. Þetta er algerlega málið.  Ég elska þetta.

Mæli með þessu fyrir alla.

Nameste!

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Já Nameste - þetta sagði ég 3svar í viku þegar ég gekk með ömmusysturbarnið þitt ;) Algjört æði

Lára Kristín (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 16:23

2 identicon

Neyðist maður sem sagt til að setja sig inn á Facebook, tímaþjófinn mikla, til að frétta eitthvað af þér.

Sigga Gróa (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 11:29

3 Smámynd: Guðrún Jónsdóttir

Já, komdu á Facebook, þetta er algerlega málið.  Það er hægt að láta hvað sem er verða tímaþjóf hjá sér.  Ég reyni bara að passa mig sem mest á öllum aukafítusunum og þá er þetta ekkert meiri tímaþjófur en tölvupósturinn, minna ef eitthvað er.  Svo er bara svo svakalega gaman að hitta gamla vini og kunningja þarna.

Guðrún Jónsdóttir, 30.1.2009 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband