30. ágúst 1993....

... fyrir 15 árum síðan var ég uppi á fæðingarstofu á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja, búin að vera með hríðar frá því á miðnætti og það bólaði ekkert á frumburðinum. 

Við vorum orðin talsverð leið og ekki síst á panflautu músík ljósmæðranna svo kveikt var á útvarpinu.

 Í útvarpinu hljómaði þetta lag

http://www.youtube.com/watch?v=chysEoANK7c

Sem var ákaflega vinsælt á þessum tíma. Við höfðum verið að rúnta á bíl tengdaforeldra minna (áttum ekki bíl þá) kvöld eftir kvöld í lundapysjuleit og tilraun til að koma barninu af stað sem var komið 10 daga fram yfir þegar hér er komið sögu. Og í útvarpinu var þetta lag ALLTAF í gangi. 

Yndislegt lag sem í dag vekur með mér mjög ljúfsárar tilfinningar. Segi nánar frá því á morgun hvers vegna það eru svona blendnar tilfinningar sem vakna.

 Kl. 13.00 þennan sama dag skaust lítill þreyttur angi í heiminn.  Hann er 15 ára í dag, miklu stærri og sterkari en mamma sinn og fallegasti og flottasti drengurinn í alheiminum, (mögulega að bróður sínum meðtöldum).

 Í afmælisveislu vill hann fá nautasteik og bragðaref í eftirrétt. Og honum mun verða að ósk sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Til hamingju með strákinn kæra systir.

Vó....líkist frænda gamla í matarvalinu.

Þröstur Unnar, 30.8.2008 kl. 09:46

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Þetta eru nú reyndar merkisdagar í fjölskyldunni. Sumir fjölskyldumeðlimir hafa notað þessar dagsetningar ýmist til að yfirgefa okkur eða þá fæðast.

Þröstur Unnar, 30.8.2008 kl. 09:51

3 Smámynd: Guðrún Jónsdóttir

Takk fyrir Þröstur!

Já, ég ætla einmitt að blogga smá um það á morgun

Guðrún Jónsdóttir, 30.8.2008 kl. 17:10

4 identicon

Til hamingju með strákinn um daginn. 15. tíminn líður maður

Sigga Gróa (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband