Fortíðarþrá og google

Ég verð að játa það að ég er enn illa haldin af fortíðarþrá (nostalgíu) eftir RSK mótið.  Ég verð líka að játa þá synd að ég hef verið að njósna um ýmis skólasystkini mín með öflugri hjálp google.is. Ég á svolítið bágt en þetta hlýtur að fara að renna af mér.

Fólk skilur eftir sig mjög misjafnlega greinileg spor á veraldarvefnum, sumir eru ófinnanlegir og hafa greinilega ekki verið neitt voðalega opinberir, aðrir poppa upp við fyrsta gúggl. Með öflugri samtvinnun google og þeirra upplýsinga sem mér áskotnuðust á mótinu og eftir mótið hef ég uppgötvað m.a. eftirfarandi staðreyndir:

 

Jón Jónsson vinur minn (sérstaklega góður vinur minn frá 82-83 og öll árin okkar á Króknum) rekur gistihús á Kirkjubóli og man sama og ekkert frá árinu 81-82. Þegar hann var pínulítill.  Hann er samt enn skemmtilegur húmoristi. Strandaferð er ofarlega á "to-do" listanum núna.

Sallý á tengdason frá Eyjum sem stundar nú nám í Bifröst og það vill svo skemmtilega til að ég þekki hann allvel, hann spilaði fótbolta með húsbandinu mínu fyrir ekki svo mörgum árum. Og dóttir þeirra Didda og Aldísar, Ragnheiður var á leikskóladeild með syni mínum.

Góðvinur minn Bergþór og bekkjarsystir mín frá 82-83 hún Anna Linda, hafa hvort um sig glímt við afar ólík en alvarleg veikindi. Ég vildi að ég hefði getað knúsað þau fyrr.

Geir töffari Karlsson er heimilislæknir á Hvammstanga og bara það eitt gerir það eftirsóknarvert að flytja þangað.  Að maður tali nú ekki um þá staðreynd að Imba er stuðningsfulltrúi/skólaliði og væntanlegur textilmenntakennari á sama stað.

Síðast en ekki síst;

fyrsti kærastinn minn, þáverandi ástin í lífi mínu, maðurinn sem ég hélt að ég myndi elska til æviloka.......

 

.... kom ekki á RSK mótið vegna þess að hann var upptekinn við að....

 

.... aka bleikum vörubíl niður Laugaveginn í tilefni af gleðigöngu samkynhneigðra. ErrmGrin

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ aftur, og fyrirgefðu þessa askotans afskiptasemi í mér  en ég verð að fá að hrósa þér fyrir dugnaðinn í googlinu.

Ég sjálfur hef ekki viljað taka af mér Reykjaskólamótsarmbandið því ég lít á það sem vinaband og ætla því að reyna að vera með armbandið það sem eftir er  Mér var reyndar gefin, afhentur, slatti af armböndum áður en ég kvaddi á sunnudeginum, svo ef það er einhver sem þú veist að vanti og vilji armband þá er bara að hafa samband og ég sendi það.

En þetta með fortíðarþrána þá hugsa ég að að renni af þér þegar þú byrjar að vinna en er samt ekki um að gera að reyna að hóa sem flestum saman fyrr en seinna og viðhalda svoleiðis hittingi með með fárra ára millibili?

Beggi (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 10:11

2 Smámynd: Guðrún Jónsdóttir

Ekkert svona, ég ætla rétt að vona að þú haldir áfram að lesa og kommenta hjá mér.

Þegar maður er einu sinni búinn að finna einhvern aftur vill maður ekki týna honum.  Ég held að það sé algerlega málið að reyna að halda kontakti við fólk eins og hægt er (internetið er einmitt kjörið til þess). Svo ef ekki verður aftur hittingur innan tíðar þá búum við bara til hitting  Og kannski bara hvort eð er?

Guðrún Jónsdóttir, 16.8.2008 kl. 11:31

3 identicon

Já ég er sko sammála ykkur, endilega halda sambandinu. Það þarf heldur ekki að vera flókinn hittingur með miklum undirbúningi, kannski eitt símtal áður en maður droppar í borgina og hittast á einhverju af óteljandi kaffihúsum sem þar eru .

Adda (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 12:00

4 identicon

Sammála, eitt símtal og hittast á ......................                              Þjóðhátíð í Eyjum  Eða í Bláa lóninu Eða bara „gjugg í borg“ nýr spuni með óvæntum uppákomum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Samið, leikstýrt og leikið af Ragnari Reykás og öðrum borgarstjórnarfulltrúum 

Beggi (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 14:58

5 identicon

Hahahaha Góður Beggó

Adda (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband